Er öllum ljóst
hvert leiðin liggur?
Við sérhæfum okkur í áherslumerkingum og jöfnu aðgengi fyrir alla, bæði innan dyra sem utan
Merkjum okkar nánasta umhverfi svo að allir komist sína leið
Við bjóðum upp á hættumerkingar, tröppunef, leiðarlínur, rampa, mottur og verkfæri fyrir fagmanninn
- Hættumerkingar með kúlum
- Áherslumerkingar með línum við tröppur
- Leiðarlínur og stefnubreytingar
- Áherslumerkingar með tröppunefum
- Merkingar á handrið o.fl.
Tryggja skal aðgengi fatlaðs fólks að samgöngum, byggingum, umhverfi og samgöngutækjum. Upplýsingar og sjónvarpsefni skal mæta þörfum fatlaðs fólks.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Betra aðgengi fyrir alla
Það eru sjálfsögð mannréttindi að hugsað sé fyrir því að fatlað fólk upplifi ekki hindranir þar sem aðrir komast áfram að eigin rammleik. Fatlað fólk vill lifa sjálfstæðu lífi og því þarf að huga að allt frá hönnun til framkvæmdar og notkunar að aðgengi sé greitt að byggingum og öðrum mannvirkjum, samgöngum, upplýsingum og þjónustu. Þar sem framkvæmd hefur verið ábótavant á að gera úrbætur sem unnt er.
Algild hönnun húsnæðis
Tryggja þarf að ákvæðum byggingareglugerðar þar um verði framfylgt. Það gagnast öllum, ekki bara fötluðu fólki.
Af vefsvæði Öryrkjabandalagsins, birt með góðfúslegu leyfi