Áherslumerking með línum við tröppur

Áherslumerking með línum við tröppur

Línur eða það sem við kjósum að kalla „marsípanbrauð“ eru notuð sem áherslumerking að neðanverðu við tröppur og rampa ásamt því að vera notuð í leiðarlínur og stefnubreytingar.

Við bjóðum upp á marsípanbrauð úr PVC / sink / ryðfríu stáli, sýruföstu-efni og pötum af áli / stáli / PVC / steypustáli / messing.

Leiðbeiningar fyrir merkingar neðanverðra trappa
Þar sem algildrar hönnunar er krafist svo sem í opinberum byggingum, atvinnuhúsnæði og sameign íbúðabygginga, skal fyrir enda neðanverðra trappa leggja annarskonar yfirborðs‐efni í lit og áferð í 0,6 m lengd frá uppstígi trappa og í fullri breidd þeirra. Þetta er gert til að vekja athygli fólks og sérstaklega sjónskertra á að hæðarbreyting sé framundan.

Varðandi merkingu
Við leggjum línur / marsípanbrauð ca. 5 cm frá hindrun og svo höfum við 60 cm með línum / marsípanbrauðum út á gólf. Við erum með okkar eigin máta til að leggja eftir. Hér er mikilvægt að hugsa um litinn á línunum / marsípanbrauðum miðað við grunnflöt.

Litamismunur á yfirborðsefnunum skal vera að minnsta kosti 60 mælt í LRV kerfinu (LRV = lysrefleksionsværdi) eða 0,75 á NCS skalanum (hlutfall endurkastshæfni ljóss. NCS = Natural Color System ). Hlutfall endurkasthæfni ljóss fyrir einstaka liti er hægt að nálgast til dæmis í atlas fyrir NCS litakerfið. Hlutfall endurkasthæfni ljóss fyrir einstaka liti dregst hvert frá öðru.

Notið til dæmis ljóst upphleypt yfirborðsefni ef aðliggjandi yfirborðsefni er dökkt eða öfugt. Mikill mismunur skal vera á litunum þar sem hann minnkar með tímanum vegna þess að yfirborðsefnin óhreinkast og upplitast. Forðast ber mjög dökka liti á ljósum yfirborðsefnum þar sem þeir geta virkað sem gat (hola) eða hæðarmunur fyrir til dæmis sjónskert fólk og fólk með heilabilun.

Mannvirkjastofnun

Leiðbeiningar um stiga, tröppur og þrep. 6.4.6 gr. byggingareglugerðar, nr 112/2012 – Útgáfa 2.2.

Iggis ehf.

Við sérhæfum okkur í áherslumerkingum og jöfnu aðgengi fyrir alla, bæði innan dyra sem utan. Við mætum til þín, mælum og gerum tilboð, smíðum, sníðum og setjum niður. 

Bæklingar og kynningar (PDF)

Er örugglega öllum ljóst hvert leiðin liggur á þínum vinnustað?

Scroll to Top